eitthvað

Þessi löngun kemur yfir mig af og til....

Löngunin að gera eitthvað

Það er erfitt að henda reiður á nákvæmlega hvað þetta eitthvað er en ég get sagt ykkur að þetta eitthvað er ekki eitthvað sem maður gerir dags daglega. Þetta er ekki einusinni eitthvað sem maður gerir vikulega eða mánaðarlega.

Þetta eitthvað er eitthvað alveg sérstakt.

Þetta eitthvað er eitthvað sem veldur því að húðin verður rafmögnuð af spennu. Það veldur því að fiðrildi sveima inni í kviðarholinu og kvíða, spennu og tilhlökkunarhnútur myndast í maganum á mér.
Þetta eitthvað er eitthvað sem á hug minn allan og ég læt mig dreyma um það allan daginn. Skoða það frá öllum hliðum og prófa allar mögulegar og ómögulegar útfærslur á því í höfðinu á mér. Ég verð uppveðruð, spennt og gröð þegar ég hugsa um það. Finn hvernig brjóstin taka við sér og mögulega hvernig rakastigið milli fóta minna eykst.
Þetta eitthvað er eitthvað sem gæti krafist mikils undirbúnings og vinnu, eða eitthvað sem gæti gerst hratt og hvatvíst, eða eitthvað sem gæti gerst næstum ómeðvitað og ósjálfrátt. Þetta gæti verið eitthvað sem ég ein stend á bak við, eða tvö, kannski tvær eða jafnvel fleiri.
Þetta eitthvað gæti verið eitthvað alveg nýtt. Það gæti líka verið gamall draumur sem verður að veruleika eða endurgerð á góðri fantasíu, góðum hitting eða drauma leik.

Hvað sem þetta eitthvað er þá togar það sterkt í mig akkúrat núna. Ég veit ekki hvað þetta eitthvað er eða hvar það er að finna en þegar ég dett niður á það, þá veit ég það!

Ummæli

Vinsælar færslur