Kenning

Ég er með kenningu og hef verið með hana lengi. Ég held ég hafi samt engum sagt af henni fyrr en núna.

Sko, kenningin mín er sú að snerting og örvun á stöðum sem alla jafna eru ekki mikið snertir eða örvaðir er skynjuð sem meiri, sterkari, öflugri og í vissum tilfellum meira örvandi.

Tökum píkur sem dæmi. Samt bara mína píku, því píkur eru jú misjafnar eins og þær eru margar og ég þekki mína píku manna best. Ég er með þykka ytri barma sem loka svæðinu alveg. Dags daglega er lítil sem engin snerting á milli barmanna. Nema jú þeir snertast hvor við annan eins og venjulega. Nærfatnaður og föt koma bara við ytri barmana að utanverðu. Þannig að þegar píkan mín er snert, hvort sem það er á kynferðislegan máta eða ekki, þá skynja ég það mjög öflugt og örvast iðullega við það.

Þegar ég hugsa út í það þá er píkan mín ekki besta dæmið, því þetta er jú kynfæri og tekur upp frekar stóran bita af skynberki heilans, þannig að það er eðlilegt að skynja snertingu og örvun þar sterkt. 

hmm.... Bakið á mér!
Bök eru ekki staðir sem eru mikið snertir eða örvaðir þannig séð. Jú, fötin snerta bakið, sæti og annað slíkt en í mínu tilfelli er ekki oft bein snerting við bakið á mér. Það er húð við húð eða hönd á bak. Á bakinu á mér eru þrír blettir, svona tveir til þrír fersentimetrar að stærð sem eru svakalega næmir. Reyndar er bakhlutinn á mér, alveg frá hálsi og niður fyrir rass, mjög næmur þegar kemur að örvun. Ég fer í sæluvímu þegar ég ligg á maganum og mér er strokið laust yfir bakið. Ég hverf í annan heim og vil helst ekki snúa til baka. Þetta er ekki bara gott heldur er þetta líka kynferðislega örvandi fyrir mig.

Ég fann annan svona stað um daginn. Það var samt eiginlega ekki ég heldur leikfélaginn.
Ég var á fjórum fótum og hann var að eiga við píkuna á mér. Hann fitlaði við mig og náði í stóra dildóinn og kom honum fyrir inni í mér. Ég var þegar orðin verulega gröð og naut þessa í botn. Þegar hann svo fer að strjúka, kyssa og sleikja mig á milli rasskinnanna þá vissi ég ekki hvert ég ætlaði! Ég skal alveg viðurkenna það að þegar kemur að þessu svæði get ég verið tepra. Þannig að í fyrstu fannst mér þetta mjög skrítið og pínu óþæginlegt. Ég ákvað þó að leggja tepruskapinn á hilluna og njóta þess sem var í gangi. Ég á bara eitt orð yfir það: VÁ!!

Þetta er einmitt svæði á mér sem er aldrei snert með þessum hætti. Það er aldrei snert bara til að gæla við það. Venjulega er bara reynt að koma einhverju þarna inn, eða út, eða inn og út með takföstum hreyfingum.... Þið vitið um hvað ég er að tala ;o)

Ummæli

Vinsælar færslur