Meira um dónatal

Símakynlíf er eitthvað sem ég hef algjörlega vanmetið undanfarin ár. Við getum sagt að tækifærið eða löngunin hafi aldrei komið yfir mig. Undanfarið hefur þessi samt löngun hellst yfir mig. Að vera ein heima, uppi í rúmi með graðann karlmann á línunni á meðan ég sé sjálf um fingraleikfimina. Uppskrift af góðum og árángursríku eftirmiðdegi.

Netspjall er aftur á móti eitthvað sem ég stunda oft og iðullega. Í gær, sem svo oft áður, sat ég uppi í rúmi með tölvuna í fanginu og var að spjalla inni á einkamal.is spjallinu. Umræðan barst að þessari löngun minni í gott símakynlíf og dúddinn lagði það til að við myndum bara gera eitthvað í því. Ég skal alveg viðurkenna það að ég var pínu treg í taumi, en sló til á endanum. Hann hringdi og við spjölluðum smá, döðruðum svolítið og fróuðum okkur hvort fyrir annað með mjög góðum árangri. Eftir stutt eftirspjall lögðum við svo á.

Ég er ekki mikið fyrir að stunda kynlíf með algjörlega bláókunnugu fólki en þetta virkaði mjög vel og þetta er eitthvað sem ég væri alveg til í að prófa aftur.

Ummæli

Vinsælar færslur