Örfantasía

Þessi er í pínu litlu uppáhaldi hjá mér.

Ég stend, föst og kemst ekki undan. Ég er upp við vegg, jafnvel bundin, kannski með hendur bundnar fyrir aftan bak eða mögulega bara bundin með orðum þínum. Þú stendur yfir mér, svo nálægt að ég finn nálægð þína í öllum líkamannum. Hendur þínar leita uppi brjóstin mín og finna geirvörtunar. Fiðringur fer um mig við snertinguna. Þú tekur þær á milli fingra þinna og ég finn augnarráð þitt á mér.
Ofur hægt og rólega herðiru takið. Það hægt að ég tók ekki einusinni eftir því fyrst að tak þitt á geirvörtunum mínum hertist. Um mig flæða allskonar tilfinningar. Nautn og unaður, tær losti og gredda, heiður og stolt, undirgefni og væntumþykja. Ég finn hvernig þú herðir takið meira. Ég fer að anda örar, dýpra. Ég fer að búa mig undir sársaukann sem ég veit að kemur. Eftir því sem takið herðist meira breytast tilfinningarnar. Nautnin breytist úr unaði yfir í eitthvað hrátt og frumstætt.
Ég být í neðrivörina og dreg andann djúpt.
Sársaukinn hríslast um mig. Ljúfur í fyrstu, svo ákafur, harður og vægðarlaus. Ég þrjóskast við að sýna þér viðbrögð. Ég skal taka því sem þú vilt frá mér. Ég lít upp í augu þín og ég sé að þú lest mig eins og opna bók. Ég sé ánægju skína úr þeim. Ég lygni mínum aftur, být á jaxlinn og gef frá mér lága stunu. Takið herðist enn meira á geirvörtunum og sársaukinn verður allt í einu óbærilegur. Ég tek andköf og urra á milli samanbitinna tannanna. Ég vil að þú sleppir takinu á sama tíma og ég vil það ekki. Ég vil sýna þér að ég er tilbúin til að taka því sem þú setur mér, hvað svo sem það er. Á sama tíma vil ég að þú gerir mér ekki meira en ég get ráðið við. Allt í einu sleppiru takinu. Einhverra hluta vegna er ég hálfmóð eftir áreynsluna. Þú tekur mig í fangið og hvíslar að mér "dugleg stelpa".

...og ég er það. Fyrir þig!

Ummæli

Vinsælar færslur