Svefnleysi

Það kemur fyrir að ég á erfitt með að sofna á kvöldin. Hausinn á mér er þá oft uppfullur af allskonar hugmyndum og hugsanirnar æða til og frá. Oft er hreinlega standandi partý í hausnum á mér, kynsvall eða ég að vinna til metorða á öllum mögulegum og ómögulegum sviðum.
Þegar ég er búin að liggja að því er virðist tímunum saman uppi í rúmi og ekkert bólar á svefninum þá er kominn tími til að draga upp góða fantasíu, dusta af henni rykið og fitla við sig, fróa sér og fá það. Undantekningarlaust slokknar á mér fljótlega eftir að ég fæ það. Þannig að þetta svínvirkar!

Mér skilst meira að segja að læknar mæli með þessu. Þetta er þá ódýrasta og náttúrulegasta svefnlyfið sem til er.

Ég mæli með því.



Ummæli

Vinsælar færslur