Vanilla

Ég er búin að vera á mjög skrítnum stað undanfarna daga. Ég hef enga löngun í að leika BDSM lega séð.
Sem að ég vil meina að sé algjörlega nýtt fyrir mér og finnst vera rosalega furðulegt.
Mig langar alltaf að leika, ég get alltaf fundið eitt eða annað sem mig langar að gera eða prufa og það þarf yfirleitt mjög lítið til að koma mér í leikstuð. En núna gerist ekkert þegar ég hugsa um BDSM, sub, dom, bindingar, meiðingar og annað þess háttar. Mér var bent á að þetta kemur yfir mig einstaka sinnum. Það er víst yfirleitt tengt stressi og álagi. Og ég verð víst alltaf jafn hissa þegar þetta kemur yfir mig. Ég virðist vera með gullfiskaminni því ég man ekkert eftir því að svona hafi komið upp áður.

Hinsvegar langar mig í gott kynlíf. Bara plain vanilla. Innilegt með kossum og knúsi, káfi og notalegum ríðingum. Kynlíf með mikilli snertingu og nánd, afslappað en fullt af djúpum losta. Ekki hamslausar ríðingar, hávaði og læti. Mér finnst þetta hálf skrítið allt saman....

Ummæli

Vinsælar færslur