Lækningin við leikfalli

Þegar ég renndi yfir síðasta póst þá sá ég að hvergi er minnst á lækninguna við leikfalli. Ekki það að það þurfi beint að lækna leikfall ekki frekar en maður læknar mar. Þetta jafnar sig með tímanum.
Það er samt eitt og annað sem hægt er að gera til að létta undir og hjálpa til. Gott spjall og nærvera við leikfélagann er víst einn liður í því. Kúr og snerting er nottla best í heimi og ýtir undir framleiðslu allskonar gleðigjafa í líkamanum. Að gera eitthvað sem veitir manni ánægju, eitthvað sem er alveg uppáhalds virkar víst líka.

Besta ráðið sem ég hef hinsvegar séð hingað til er súkkulaði! Það skiptir eiginlega ekki máli hvaðan ráðleggingarnar koma. Flestar þeirra enda á: ...og súkkulaði.

Ummæli

Vinsælar færslur