Sadistinn í mér er svo sannarlega vaknaður

Eftir síðasta leik þá er hausinn á mér búinn að vera á fullu í sadískum bollaleggingum. Ég ræð ekki við það! Ég er kannski bara að ganga eftir ganginum í vinnunni minni en í huganum er ég að úthugsa bindingar og leiki... Hvort að það virki að gera svona eða hinsveginn. Svona klemmur eða aðrar, eða bara þvingur. Stærra band eða minna, kannski teyjur séu málið. úúú... kertavax, eða deep heat. Einhver sagði líka eitthvað um engiferrót.
Ég er sérstaklega slæm á kvöldin þegar ég er komin upp í rúm og á að vera að fara að sofa. Hugsanir á borð við þessar halda bókstaflega fyrir mér vöku. Ég komst líka að einu mjög skemmtilegu þegar ég var í þessum aðstæðum um daginn. 

Núna vantar smá forsögu: Hingað til hef ég skilgreint mig sem sadista á þann hátt að ég fái ekkert kynferðislegt út úr því að pína eða meiða fólk en ég hafi bara rosalega gaman af því. Það kítlar einhverjar taugar sem eru venjulega ekki kítlaðar. Þetta er skilgreining sem ég hef verið alveg sátt við og ekki spáð meira í. Sumir eru kynferðislegir sadistar en ég er ekki ein af þeim. Eða það hélt ég. 

Hoppum aftur til baka. Ég var sem sagt andvaka vegna allskonar hugmynda og hugsana sem leituðu á mig. Ég var á engum tíma búin að plana þrjá leikhittinga þar sem ég ætlaði að gera eitt í þeim fyrsta, byggja ofaná það í næst og toppa allan skalan í þeim þriðja... eða eitthvað álíka. Það voru allavega miklar pælingar í gangi og ég var bara orðin frekar spennt. Þar af leiðandi gat ég ómögulega sofnað. Og eins og þið vitið þá er besta ráðið við svefnleysi sjálfsfróun. 
Þannig að meira af skyldurækni við sjálfa mig og mína svefnþörf þá leituðu hendurnar suður yfir heiðar og fundu þar fyrir rennandi blauta píku! Við erum að tala um sullblauta þrútna og þurfandi píku. Hugurinn var ekki á þeim stað að ég væri að farast úr greddu, heldur var hann á fullu í sadískum BDSM leikjum. Líkaminn virtist hinsvegar taka mjög vel undir það og brást við á sinn eigin hátt. 

Ég hef aldrei blandað saman BDSM leik þar sem ég domma saman við eitthvað kynferðislegt af minni hálfu. Kannski er bara kominn tími á að fara ótroðnar slóðir og kanna hvort greddan kvikni eins í alvöru leik en ekki bara ímynduðum.... 

Þá er það spurningin: Gerir maður eitthvað í því? Og hvað ætti það að vera? 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hvernig velurðu þræla? Eru þrælarnir allveg til í að fá ekkert út úr þessu ef þú gerir ekkert kynferðislegt?
Nafnlaus sagði…
Hvernig velurðu þræla? Eru þrælarnir allveg til í að fá ekkert út úr þessu ef þú gerir ekkert kynferðislegt?
Prinsessan sagði…
Þeir leikfélagar sem ég domma eru yfirleitt masokistar. Þannig að þeir fá sjálfir helling út úr því að vera bundnir og pýndir án þess að það sé kynferðisleg útrás með í dæminu.

Vinsælar færslur