Ég kíkti á langþráð munch í gær. Þar hitti ég fullt af frábæru gömlu fólki og kynntist æðislegu nýju fólki.
Það er bara eitthvað við að setjast niður með perralingum og ræða heimsins gagn og nauðsynjar. Þarna var samansafn af allskonar flottu fólki á öllum aldri og menntunarstigum sem eiga það sameiginlegt að vera perrar inn við beinið. Maður þarf ekki að passa sig hvað maður segir í þessum hóp og furðulegustu umræðuefni hafa dúkkað upp. Almennt ríkir kæti, gleði og algjört fórdómaleysi á þessum hittngum. En öll erum við samt bara fólk.

Í gær sátum við nokkur saman við borð og ræddum þann misskilning sem ríkir um fólk sem hneigist að BDSM.

Einn við borðið sagði af vini sínum sem heldur að ef að hann búi sér til aðgang inn á fetlife þá fái hann að minnsta kosti að ríða(þó svo að hann hneigist ekki að BDSM), þar sem allar kinky stelpurnar séu pottþétt að drepast úr greddu, alltaf, og til í að ríða hverju og hverjum sem er, hvenær sem er og hvar sem er. Og sko, ef að hann myndi nú bara setja mynd af tippinu á sér í prófílinn sinn, þá yrðu stelpurnar eins og mý á mykjuskán.

Elsku kallinn, þetta gæti ekki verið fjarri lagi! Eins og ég sagði þá erum við öll bara fólk. Fólk sem hefur kannski öðruvísi þarfir og langanir en meirihlutinn, en engu að síður einstaklingar sem krefjast virðingu og trausts fyrst og síðast. Undirgefnar stelpur eru hvað grimmastar í að hrauna yfir graða karla sem halda að þær séu bara auðveldur dráttur.

Sá á eftir að verða fyrir vonbrigðum...

Ummæli

Vinsælar færslur