Hættu þessu blaðri...

Kvöld eitt eftir innilegan og ófullnægjandi ástarleik (af minni hálfu) lágum við uppi í rúmi og vorum að vinna í að ég fengi mitt. Þetta var svona kósý stund. Við vorum bæði mjög afslöppuð og hamslaus losti var víðs fjarri. Þetta var meira spurning um að ég fengi mína útrás heldur en svakaleg læti og ærslagang. Ég fæ ekki fullnægingu með svakalegum látum og ærslagangi. Með fæturna okka flækta saman, fingurna hans í píkunni á mér og vísifingur á snýpnum naut ég stundarinnar í botn en hugurinn var samt á flugi. Hvert umræðuefnið á fætur öðru valt upp úr mér og ég átti erfitt með að einbeita mér að verkinu. Á endanum fékk hann nóg og sagði: Hættu þessu blaðri og einbeittu þér að því að fá það! 

Hann hefur oft sagt mér að hætta þessu blaðri en yfirleitt kemur í kjölfarið ...og farðu að sofa! Að einbeita mér að því að fá það hefur ekki verið vandamál hingað til. Í þessu tilfelli gerði ég bara nákvæmlega eins og mér var sagt og innan skamms vorum við bæði fullnægð í faðmlögum.

Ummæli

Vinsælar færslur