Saklausar stelpur

Ég þekki eina tvítuga snót sem er allra meina bót (þetta rýmaði!).
Ég hef notið talsverðar samveru með henni í sumar í gegnum vinnuna og eftir smá fíflagang og skot þá opnaðist á umræðuna um kynlíf, skot, ástir og sambönd. Við höfum oft verið að grínast með það hversu saklaus hún er í öllu þessu. Hún er samt skotin í einum strák sem á kærustu. Hann er mjög hávaxinn en kærasta er mjög lágvaxin. Einhverntíman spurði hún mig hvernig kynlífið væri eiginlega hjá svona fólki, þar sem kærastan er miklu minni en kærastinn.
Ég setti mig í stellingar og fór að tala um það að stór karlmaður hljóti hlutfallslega að vera með stærra tippi en smávaxinn maður og að smágerð kona hljóti þá....
Hún horfði á mig með svip sem ég á erfitt með að lýsa og ég snarþagnaði. Þá sagði hún eitthvað á þá leið: Ég var samt bara að spá í að sko, ef að hana langar að kyssa hann, þá nær hún ekki upp. Ég starði á hana til baka og það eina sem ég gat hugsað var: Já, þú ert svolítið saklaus... 

Opinbera svarið var samt: Hún hlýtur þá bara að ná sér í stól.

Ummæli

Vinsælar færslur