Kínverjarnir eru ekki með þetta

Ennþá og aftur er ég í dótahugleiðingum. Endur fyrir löngu sá ég dildó í kvikmynd. Það sem var merkilegt við þennan dildó er að hann snérist í hringi. Hann var örlítið boginn og í staðinn fyrir að halda lagi sínu og titra bara þá snérist hann í hringi og vatt einhvernveginn upp á sig. Alla tíð síðan ég sá þetta þá hefur mig langað í svona leikfang.

Það næsta sem ég hef komist svona leikfangi var kanínutitrarinn sem ég átti, en hann var ofur. Ekki nóg með það oddurinn á honum snérist svona í hringi þá voru líka kúlur inni í honum sem snérust, hann titraði og var snípkítlu. Enda var hann líka þannig að það var nóg að koma honum fyrir á sínum stað, setja í gang, bíða smá og þá fékk ég það.... eða svona hér um bil. Þetta var þvílíkt tryllitæki!

Núna langar mig hinsvegar í hitt. Mig langar í einfaldan dildó sem þarf ekki endilega að titra en hann þarf að gera þetta. Þegar ég leita að rotating dildo á aliexpress þá koma inn allskonar titrarar og dót en enginn virðist vera eins og ég er að leita að. Svo virðist sem þeir tengi öll möguleg og ómöguleg leitarorð við vörurnar sínar sem ef til vill gæti fengið kaupandann til að velja hana. Samanber: Girl lady sex toys Realistic Penis With Suction Cup Multi Speed Vibrating Rotating Dildos Adult Sex toys for women Waterproof (ísl. stúlku dömu kynlíf leikföng Raunverulegt tippi með sogskál fjöldi hraða stillinga titrarindi snúnings dildo fullorðins kynlífsleikföng fyrir konur vatnsheldur). Svo þegar maður skoðar vöruna þeirra þá er þetta bara venjulegur titrari. Bleikur í þokkabót og ekkert í líkingu við raunverulega limi.

Realistic my ass!

Ummæli

Vinsælar færslur