Vel þess virði

Ég fékk vinabeiðni inni á einkamál um daginn. Venjulega spái ég ekki í þeim en þetta notendanafn vakti athygli mína. Ég kíkti inn á auglýsingu viðkomandi og önnur setning í auglýsingu viðkomandi var "Ég ætla ekki að eyða pening í þetta vefsvæði af því að þú ert einfaldlega ekki þess verðug." 

Hef ég ekki oft prédikað mikilvægi virðingar og vinuáttu í BDSM samböndum? Hafi ég ekki gert það þá vil ég bara undirstrika að virðing, vinátta og traust er hornsteinninn í öllum BDSM samböndum. Það að byrja samband á því að segja þú ert einfaldlega ekki þess verðug að ég leggi það á mig að borga 799 kr á mánuði til að hafa almennileg samskipti við þig gefur ekki fyrirheit um að framhaldið verði frábært.

Og bara svo þú vitir: Ég er svo sannarlega verðug! 

Ummæli

Vinsælar færslur