Meira af nýju dóti

Ég er búin að vera í einhverju dótakasti undanfarið. Mig langar í ALLT! Nefndu það, ég annað hvort á það eða langar í það. Gallinn við það er að veskið mitt er ekki alveg sammála.

Um daginn var ég límd inni á Aliexpress yfir uppblásanlegum butplugum. Eftir miklar pælingar og bollaleggingar ákvað ég bara að skella mér á einn af þeim ódýrustu sem til voru. Í versta falli væri þetta drasl, og ég hef alveg eytt þúsundkalli í meiri vitleysu en það, og í besta falli væri þetta hið skemmtilegasta leikfang.
Nokkrum dögum seinna bankaði pósturinn upp á með pakka handa mér. Strax það kvöld voru æfingar með nýja dótið og það er æði! Ég veit ekki hvað það er, en þetta leikfang er frábært. Það er æðislegt að getað leikið sér með stærðina á því og fundið hann þenjast út í rassinum á manni. Hann er hvorki of stór né of lítill. Hann hentar mér fullkomlega.

Eini gallinn við hann er að það er ekki hægt að pumpa hann nema svo og svo mikið upp. Það er hægt að kreysta loftið til baka ef að hann er of mikið pumpaður upp. Ég var mikið að spá í að skipta ventlinum út fyrir öflugri ventil sem heldur meiri þrýstingi. Hinsvegar var mér bent á að þetta gæti verið öryggisatriði....

Hvað ætli gerist ef að uppblásanlegur butplug springur inni í rassinum á einhverjum?

Ummæli

Nafnlaus sagði…
http://www.dailymotion.com/video/xlee69_exploding-butt-plug_redband
Nafnlaus sagði…
Það er erfitt að pumpa uppblásanleg buttplugg það mikið að þau geti sprungið inní fólki.

Það er hreinlega ekki nógu mikið pláss til þess þannig að erfiðleikarnir við pumpunina eru líklegast komnir til vegna þess að þú ert farin að þrýsta á þarmaveggina.

En til að vera örugg eða öruggari teldu hversu oft þú getur pumpað með hann inní þér án þess að reyna um of á þolmörk þín. Taktu hann svo út og pumpaðu 2x oftar.

Segjum að þú hafir pumpað 10x með hann inn í þér. Prófaðu að pumpa upp í 20. Núna ertu komin með viðmiðun. Prófaðu að pumpa 30x og svo kannski 40x og þá ættirðu að vera safe með 15x og 20x inní þér.

Þetta er vissulega háð því að það séu engar rifur eða rispur á belgnum sem pumpast upp. Um leið og eitthvað slíkt sést, þá mundi ég taka hann úr notkun. Gott ráð er að gera inspection þegar hann er fullpumpaður 30-40x eða hvað það er sem er hámarkið. Smokkur utan um hann gæti veitt einhverja vörn og helst ekki gleypa hvassa hluti.

Vinsælar færslur