BDSM-jóla-leik-partýstand

Jólagjöfin frá okkur til okkar var að leigja íbúð í bænum fram yfir áramótin. Um leið og íbúðin var bókuð var boðað til partýs. Réttara sagt: BDSM partýs! Ég fékk reyndar að heyra það frá fleiri en einum að þeir myndu ekki koma sökum þess að vera hinum meginn á landinu, ekki á landinu, í afmæli eða annars uppteknir við eitthvað annað... Auðvitað hefði ég viljað hafa alla uppáhalds perralingana mína á stanum og fannst það miður hve margir gátu ekki komið. Þetta fylgir því að halda partý á jólunum. Partýið var hinsvegar æðislegt! Og þið sem ekki komuð: Þið misstuð af ótrúlega skemmtilegu kvöldi! 

Ég hef aldrei viljað leika eitthvað opinberlega og í partýjum. En í þar síðasta BDSM partýi steig ég út fyrir þægindarrammann og píndi einn og var floggeruð af öðrum(og var viku að jafna mig á eftir)! Það var æðislegt og það verður ekkert aftur snúið eftir þá reynslu. Enda tók ég allt dótið mitt með mér í bæinn. Ég dreifði vel úr því á fataslá sem var fest á vegg inni í svefnherberginu. Fatasláin fékk nafngiftina "montprik" enda er ég meira en lítið montin af nær öllu dótinu mínu. Montprikið var líka mjög handhægt í leik. 

Þannig var það að einn ákaflega yndislegur masókisti kom í partýið. Eftir að hafa prófað að setja klemmur á hann í síðasta partýi þá dauðlangaði mig að gera meira af því. Þegar að partýið var aðeins komið af stað fórum við að leika. 
Ég batt hann í stól fyrir framan montprikið. Síðan var skellt á hann augnbindi og munnkefli og klemmupokinn var dreginn fram. Ég festi nokkrar litlar klemmur á brjóstin á honum en fékk þá djöfullega hugmynd. Saklausu klemmurnar voru fjarlægðar og clover klemmurnar sóttar. 
Clover klemmurnar eru þannig gerðar að þær herðast meira eftir því sem það er togað í þær (sjá hér). 
Svo var tekið band og bundið í þær. Sérlega dyggur aðstoðardom kom með skúringafötu, og bandið var þrætt yfir montprikið og í skúringafötuna. Síðan fór sérlega dyggi aðstoðardomminn fram í eldhús og kom með könnu með vatni í. Vatninu var rólega helt í fötuna, sem að sjálfsögðu þyngdi fötuna sem um nam þyngd vatnsins og togið á geirvörtunum jókst eftir því. Sérlega dyggi aðstoðardomminn fór fjórar ferðir inn í eldhús til að fylla á könnuna áður en við létum gott heita og losuðum klemmur af. Ég eiginlega treysti bandspottanum ekki í meiri átök. Næst verður samt spottinn öflugri og fötunar tvær.... Múhahaha.... 

Ég verð að viðurkenna það að ég virkilega naut þess að domma með annan dom mér við hlið. Mínar sadísku hugmyndir ná bara svo langt. En þegar það er annar með mér, með álíka afbrigðilegan huga, þá virkar það eins og magnari á allskonar skemmtilegar hugmyndir. Þetta er eitthvað sem að mig langar að gera meira af. 

Hver vill koma að leika? 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
ég svo sannarlega ;)

Vinsælar færslur