Meira af jóla-leik-partýi

Í partýinu um daginn gerði ég meira en að pína aðra. Ég fékk líka mjög skemmtilega útreið sjálf. Eins og ég sagði þá fékk ég mjög góða floggun í þar síðasta partýi. Í þessu partýi var sá leikur endurtekinn... nema bara þessi leikur var betri.

Ég var bundin lauslega öfugt á stól. Stóllinn var staðsettur við hliðina á útvarpinu og útvarpið var stillt á X-ið.
Í hönd fór upphitun með tiltölulega léttum áslætti. Ég fann hvernig efnafræði líkamans tók yfir og ég sökk inn í leikinn. Ég hætti að heyra spjallið við eldhúsborðið eða í tónlistinni úr útvarpinu. Ég bara naut þess að finna högginn lenda taktfast á mér og sveif um á skýi.


Dunk... dunk... 
Höggin lentu á herðarblöðunum og öxlunum. 


Dunk... dunk... 
Ég datt inn í taktfastann ásláttinn og ekkert annað komst að.


Dunk... dunk... 
Ég fann húðina hitna og höggþungan smám saman verða meiri í kjölfarið.


Dunk... dunk... 
Ég sleppti alveg tökum á veröldinni og hætti að finna fyrir stólnum sem ég sat á, stellingunni sem ég var í og fann ekkert annað en taktfastann sláttinn. 


...Praise be to Jesus... 
Einhvernveginn nær þetta í gegn til mín frá útvarpinu. 


Dunk... dunk... 
Höggin halda áfram að lenda taktfast á mér og ég nýt þeirra á allan hátt.


...Turning water into wine... 
Jább, hann átti víst að hafa gert það líka. 


Dunk... Dunk... 
Höggin virðast vera komin í takt við lagið í útvarpinu þannig að ósjálfrátt fer ég að hlusta meira á það. 


...Jesus died but then came back to life
So the Holy Bible said
Kinda like in Dawn of the Dead... 
Dawn of the Dead í tengingu við Jésús. Þetta er svolítið skondinn texti! 


Dunk... dunk... 
Það er samt verið að floggera mig og ég ætla að einbeita mér að því en ekki textanum í laginu. 



...Zombie Jesus!.... 
Hvað sagði hann?? 


Dunk... dunk... 
Floggun í gangi, einbeita sér... 



.... Zombie Jesus!... 
Ok, hann sagði Zombie Jesus, er það ekki? Ég ætla að heyra það næst!


Dunk... dunk...


.... Zombie Jesus!... 
Jú! Alveg pottþétt, Zombie Jesus... 


Dunk... dunk...


...Woody Allen Zombie Superman Komodo Dragon Jesus.... 
Vá, í alvöru! Þetta er gegt fyndið. Ég flissa svolítið með sjálfri mér á bak við munnkeflið, ég held að enginn hafi tekið eftir því.


Dunk... dunk... 
Einbeita sér! Floggun í gangi, mannstu?!


...Jesus is in more than one place at a time
like....or Schrödinger’s feline.... 
OMG lærði um kött Schrödingers, sem var í kassanum og ekki á sama tíma og allt það! Þetta er drepfyndinn og flottur texti! Þarna sprakk ég líka pínulítið úr hlátri, og veit að það var tekið eftir því. 


Dunk... dunk.... 
Halló!! Það er verið að flogga þig! Þú átt ekki að vera að hlæja að einhverjum texta, heldur njóta þessarar floggunar. Hættu að hlæja!
Núna!
Hættu að hlæja!


...Jesus had bare feet, long hair, and a beard.... 


Dunk... dunk.... 


....Praise be to Magic Woody Allen Zombie Superman Komodo Dragon Telepathic Vampire Quantum .... 
HA? Hvað var þetta? Zombie, Komodo Dragon, Vampire... Hvað?!!
Lagið virðist samt vera að klárast. Þetta er ógeðslega fyndinn texti en það er floggun í gangi hérnameginn. Þá get ég loxins farið að einbeita mér almennilega aftur að henni.


Dunk... dunk... 


Dunk... dunk... 


Dunk... dunk... 
MMM.... Þetta er gott!



 Leikurinn var talsvert lengri en þetta eina lag, bæði fyrir og eftir, kannski sem betur fer! En þetta er einmitt ástæðan fyrir því að maður ritskoðar tónlistina fyrir leik....

Ummæli

Nafnlaus sagði…
LOL

Vinsælar færslur