Stærsta viftan mín

Ég er með auglýsingu inni á einkamal.is þar sem ég vísa í bloggið mitt. Þar af leiðandi fær ég reglulega skilaboð inni á einkamal þar sem einhver hrósar mér fyrir það (og ég elska að fá svoleiðis skilaboð!)

Um daginn fékk ég eitt slíkt. Ég svaraði og þakkaði viðkomandi fyrir. Það leiddist út í smá spjall og upp úr krafsinu kom að þessi er búinn að fylgjast með blogginu mínu næstum því frá upphafi. Hann fær klárlega hrós dagsins fyrir það.
Hann er mikill aðdáandi bloggsins. Það sem meira er, þegar við fórum að spjalla um hinar og þessar fantasíur sem að við eigum þá kom það í ljós að þessi á sér eina fantasíu um MIG! Þið vitið, suma dreymir um Angelinu Jolie eða Brad Pitt, eða einhverja aðra stórstjörnu. Svo er einn þarna úti sem dreymir um mig, á sama hátt og einhver annar dreymir um Angelinu Jolie. Þýðir það þá að ég sé komin í sama flokk og hún?

Ummæli

Vinsælar færslur