"Afhverju bloggaru?"

Ég hef af og til fengið þessa spurningu í gegnum tíðina og virðist alltaf þurfa að leggja höfuðið í bleyti til að svara henni. Það er ekki til eitthvað eitt einfalt og fullnægjandi svar við henni.
Einfaldasta svarið er nottla að ég hef gaman af því. En svo má líka kafa dýpra.

- Ég blogga af því að ég hef skoðun og áhuga á þessum málaflokki. Hvort sem það er kynlíf eða BDSM þá hef ég mikinn áhuga á því. Ekki bara að stunda það, heldur að tala um það, lesa um það, fræðast um það og fræða aðra um það.

- Ég blogga til að fræða. Sumar færslur eru hreinn og klár fróðleikur, á meðan aðrar eru skrifaðar sem skemmtun. Ég reyni samt oft að flétta þessu saman þannig að innan um skemmtilegheitin er að finna smá fróðleik og upplýsingar sem nýtast lesendum mínum.

- Ég blogga því að ég vil gefa lesendum innsýn inn í reynsluheim minn. Þegar ég var ung og var að þreyfa fyrir mér á sviði kynlífs og BDSM, þá hefði ég viljað hafa svona blogg til að skoða. Ég hefði viljað getað séð að það er allt í lagi að lifa frjálslegu kynlífi og að stunda BDSM, og það er fólk í íslensku samfélagi sem gerir það.

- Ég blogga því að ég vil gefa lesendum mínum innsýn inn í hugarheim minn. Ég hef gaman af því að deila hugsunum, hugmyndum og pælingum. Það hjálpar mér líka að vinna úr því, læra að þekkja sjálfa mig og skoða hver ég er.

- Ég blogga til að vinna úr því sem ég hef upplifað. Með því að blogga um það sem hefur á daga mína drifið þá vinn ég betur úr því. Það kemst röð á regla á hugsanir og tilfinningar tengdar atburðinum og með því að skrifa um hann festist hann enn betur í minninu. Á vissan hátt er þetta reynslubankinn minn.

- Ég blogga því ég er montin. Ég er montin af blogginu mínu, sem verður níu ára núna í febrúar og þess vegna held ég því við. Það koma líka dagar þar sem ég er mjög upprifin og ángæð með sjálfa mig og það sem ég hef gert. Sérstaklega þegar ég hef gert eitthvað sem er einstaklega skemmtilegt, frumlegt, öðruvísi eða eftirsóknarvert(að mínu mati) og þá langar mig bara að deila því með lesendum mínum.

- Ég blogga mér og lesendum mínum til afþreyingar. Ég blogga af því að ég hef gaman af því. Af því að ég veit að einhver les þetta og hefur gaman af. Þar með fæ ég helling út úr því að blogga. Enda myndi ég ekki nenna að blogga ef að enginn myndi nenna að lesa það.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Gaman að rata inn á þetta blogg eftir langt hlé. Les mér til óbóta núna. :)

Kv.

Victoria vinkona.
Nafnlaus sagði…
Èg hef mjög gaman af þessu bloggi pg skoða það oft, það væri gaman ef þú myndir koma með og útskýra hugtök í bdsm. Hef alltaf c erið forvtin en ekki gengið mikið eftir því a fræðast og eða læra

Vinsælar færslur