Djúpa laugin

Ég hef sagt ykkur frá vinkonu minni. -Þessi sem er að stíga sín fyrstu skref í BDSM heiminum. -Þessi sem stefnir á að fara í þennan klúbb í Danmörku.
Allavega þá er hún hérna á landinu um þessar mundir og kom í partýið til mín milli jóla og nýárs. Ég hef lengi verið að reyna að draga hana á munch, en það hefur ekki borið árangur sem erfiðis.
Í stað þess að fara þæginlegu og öruggu leiðina og byrja á því að kíkja í kaffihúsaspjall með liðinu til kynnast því aðeins, sýna sig og skoða aðra, þá henti hún sér beint í djúpu laugina og mætti í partýið.
Ég get rétt ímyndað mér hvernig partýið hefur verið með hennar augum. Lítil íbúð, hálf full af algjörlega ókunnugu fólki í mis svörtum fötum úr mis miklu leðri. Leikföng flæðandi út um allt og umræðuefnin snérust um sverleika banda og hvar þau fengjust á sem hagstæðustu verði. Er það í Bauhaus eða BYKO?
Ég fór nottla með hana beinustu leið að montprikinu og sýndi henni dótasafnið mitt. Benti henni svo á einn og annan hlut hjá samperraling til að dást að. Hún var mjög hrifin og við ræddum aðeins um leikföng og áslátt. Svo bauðst henni að prófa að vera flogguð, Hún þáði boðið og herlegheitin hófust strax þá og þegar. Ég eiginlega réð mér ekki fyrir kæti og sagði öllum sem heyra vildu hvað væri að gerast. Það voru sem sagt ekki liðnar átta mínútur frá því að hún gekk inn um dyrnar í sitt fyrsta BDSM partý, að hún var komin á stól og það var byrjað að flogga hana!! Geri aðrir betur! Ég held að það sé eiginlega ekki hægt. Þegar að frá leið þá prófaði hún líka rafmagnsdót og klemmur, varð vitni að nokkrum leikjum og eftir því sem ég best veit þá naut hún sín í botn.

Ég er óendanlega stolt og ánægð með hana!

Ummæli

Vinsælar færslur