Fullnægingar

Ég á eina mjög góða vinkonu sem ég get rætt allt milli himins og jarðar við. Þar á meðal kynlíf og BDSM.
Hún er þeim einstaka hæfileika gædd að getað fengið fullnægingu í svefni. Ef að hún hefur ekki fengið útrás lengi þá sér líkaminn bara um þetta fyrir hana. Einn blautur draumur og búmm!! Fullnæging í boði hússins. Ég veit að margur karlmenn fá sáðlát í svefni en fylgir því fullnæging?
Ég er ekki alveg svona heppin. Ef að mig dreymir blautan draum þá vakna ég iðullega blaut og gröð, en ófullnægð. Oft hefur mér fundist ég vera svooo nálægt því að ég hef ríghaldið í drauminn þrátt fyrir að líkaminn segi að tími sé kominn til að vakna. Aldrei hefur mér þó tekist að fá það með þessum hætti og iðullega endar þetta með a) degi þar sem ég er meira og minna gröð eða b) ég geng í málið og klára dæmið sjálf, vakandi.

Ummæli

Vinsælar færslur