Meira af fullnægingum

Þessi sama vinkona mín og fær það í svefni er líka þeim hæfileika gædd að getað hugsað sig til fullnægingar. Hún þarf ekkert að snerta heldur bara að kreysta og slaka á vígsl grindarbotnsvöðvana á meðan hún hugsar eitthvað sem er kynferðislegt, æsandi og örvandi. Smá af þessu og hún fær það! Bara si svona!
Já, þið getið rétt ímyndað ykkur hvað mér gremst það að vera ekki svona einföld í sniðinu. Ég þarf svo miklu Miklu MIKLU meira til. Ég þarf að hafa fingurna á réttum stað, hugann við rétta efnið, tæknina á hreinu o.s.frv. Ofaná það þá er dagamunur á því hvort að það virkar að strjúka eða nudda, vera örlítið harðhennt eða snerta ofur laust, putta með eða sleppa því, rassinn með eða ekki.... Fyrir utan hvað þetta getur tekið langan tíma. Stundum finnst mér það hreinlega ekki þess virði.

Ummæli

Vinsælar færslur