Nýtt ár!

Gleðilegt nýtt ár lesendur mínir kærir, nær og fjær. Hvort sem þið sitjið fyrir framan tölvuna, eruð í snjallsímanum ykkar, spjaldtölvunni eða ipodinum. Hvort sem vafrinn ykkar heitir chrome, safari, CriOS eða firefox. Hvort sem þið notist við apple græju, PC eða eitthvað allt annað.
Ég vil þakka ykkur bloggárið sem er liðið nú þegar við göngum inn í níunda bloggárið mitt. Megi það vera eins færsluríkt og það áttunda, og leggja grunnin að áframhaldandi bloggeríi með tilheyrandi perraskap. Eða sko.. perraskap með tilheyrandi bloggeríi.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Takk fyrir frábært blogg. Ég er með spurningu handa þér. Hvað er einkenni góðs Dom og hvaða Dom og Dómína væri best til að læra af? Er hægt að komast í samband við þau?
Prinsessan sagði…
Hvað einkennir góðan dom... hmm...
Í mínum huga er það einhver sem sýnir þér áhuga, sem er tilbúinn að gefa þér tíma og getur spjallað við þig um annað en það sem snýr að BDSM eða kynlífi. Það er einstaklingur sem sýnir þér virðingu og virðir þau mörk og skilyrði sem þú setur upp.
Ég get ekki bent þér á einhverja ákveðna einstaklinga, en ég mæli með því að þú búir þér til aðgang inni á fetlife.com og lesir þér til um allt sem þessu viðkemur þar. Þar gætiru líka komist í samband við góða domma og dómínur.
Gangi þér vel.
Nafnlaus sagði…
Er búinn að stunda bdsm í mörg ár og er með mjög mikla reynslu. Hef ekki séð ástæðu til að sækja í íslensku bdsm senuna því mér finnst hún vera of mikið nýliðadót eitthvað. Engin með reynslu að gera eitthvað alvöru. Er komin einhver reynsla í hópin? Er eitthvað af sætum stelpum sem eru til í alvöru dom að mæta í þessi partý?
Prinsessan sagði…
Hæ þú reynslumikli.
Þú segir að enginn með reynslu sé að gera eitthvað alvöru í senunni. Það þarf fólk í senuna til að deila af reynslu sinni, mögulega svo aðrir geti lært af og öðlast sjálfir reynslu. Ef að reynslumikla fólkið heldur sig til hlés, því það er enginn með reynslu að gera eitthvað alvöru í hópnum, þá verður það líka alltaf svoleiðis.
Einhver þarf að stíga skrefið, ýta boltanum af stað og þá fylgja aðrir á eftir.
Sætu stelpurnar koma þegar alvöru domminn mætir.... ;o)

Vinsælar færslur