Stjörnur

Ég heyrði mjög skemmtilegt viðtal við Röggu Eiríks, hjúkrunarfræðing ekki alls fyrir löngu. Hún talaði um að skemmtilegt væri að merkja við í dagatalinu sínu þá daga sem maður hefur stundað kynlíf. Gaman væri að skella einni stjörnu á þá daga sem eitthvað skemmtilegt hefur átt sér stað undir sænginni, eða ofaná henni, eða bara fjarri henni.
Ég gat algjörlega samsamað mig því sem hún sagði. Enda er ég með stjörnukerfi sjálf. Dagbækurnar mínar eru stjörnumerktar í bak og fyrir mörg ár aftur í tímann. Ég held ég hafi byrjað á þessu fyrir vel rúmlega 10 árum síðan og kefið hefur þróast eftir því sem árin líða. Hver stjarna hefur sína merkingu. Venjuleg fimmhyrnt stjarna stendur fyrir vanillukynlíf. Davíðsstjarnan, þessi sexhyrnta er fyrir BDSM leiki. Ef að það eru geislar með stjörnunum þá hef ég fengið fullnægingu í það skiptið. Út frá því bjó ég til enn eina stjörnuna, en það er þessi pínulitla, sem er bara nokkur strik þvers og kruss. Það stendur fyrir mína fullnægingu án aðkomu annarra.
Því miður hef ég ekki alltaf verið nógu dugleg að teikna stjörnur þegar það á við, þannig að ég get ekki tekið saman stjörnurnar á árinu og sagt nákvæmlega til um hvað var gert, hvernig og hversu margar fullnægingar voru með í spilinu...

Ummæli

Vinsælar færslur