Undirbúningur fyrir leikpartý

Í byrjun janúar var enn eitt leikpartýið og að sumra mati það besta hingað til. Stemmingin var góð, það var vel mætt, mikið leikið og leikirnir voru mjög fjölbreyttir.

Ég hef ákaflega gaman af því að hafa mig vel til fyrir partý. Ég reyni að vera aldrei í sama klæðnaðinum tvö partý í röð. Ég reyni því að bæta og breyta fatasamsetningunni fyrir hvert partý fyrir sig. Kærastinn minn hafði orð á því að honum finndist þessi partý vera einhverskonar peacocking viðburðir, það er að fólk klæði sig extra vel og áberandi. Ég benti honum á að það væri nú eiginlega bara ég sem væri að standa í þessu. En ég hef alveg úr nokkrum fetish flíkum að moða fyrir svona partý.

Ég á skúffu fulla af kinky fötum, í henni eru ein fjögur korsett sem hvert um sig minnkar mittismálið umtalsvert og draga fram mjaðmirnar. Korsett koma í nokkrum gerðum, algengastar eru yfir brjóst (e. over bust) korsett, en þau ná upp yfir brjóstin, og undir brjóst (e. under bust) korsett, sem ná bara að brjóstunum en fara ekki yfir þau. Ég á tvö undir brjóst, eitt sem kemur ca á mið brjóstin og eitt sem fer alveg yfir brjóstin. Ég elska að vera í korsettum! Þau eru svo flott og tilfinningin þegar maður er í þeim er svo góð. Maður bara veit að maður lítur vel út, og þau halda svo yndislega þétt um búkinn.
Svo eru í skúffunni tjullpils sem ég saumaði fyrir hrekkjavökupartý árið 2012, netasokkabuxur, svartar venjulegar sokkabuxur, nokkur pör af hönskum, gríma og svört leðurstígvél. Ekki í skúffunni, en vel nothæft eru nokkur venjuleg pils og kjólar sem koma mjög vel út með korsetti. Um daginn bættist við hattur úr áramótadóti Tigers. Úr þessu má moða eitt og annað en svo er líka gaman að krydda venjuleg föt með einhverju óhefðbundnu. Allt má og það er svo gaman! 

Allavega, fyrir þetta partý þá var ég með ákveðnar flíkur og samsetningu í huga. Kvöldið fyrir partýið þá ákvað ég að fara í fötin og máta þau saman, svona ef að eitthvað skildi ekki ganga upp eða eitthvað skildi þarfnast lagfæringar fyrir partýið.
Ég skellti mér í svartar einfaldar sokkabuxur. Svo fór ég í tjullpilsið við. Það er mjög stutt að framan og nær bara rétt niður á lærin en að aftan nær það nánast niður að hnjám. Við það fór ég í svart korsett sem nær yfir brjóstin, Í því virkaði ég mittisgrönn og með brjóstaskoru fyrir allan peninginn.
Allavega, þegar ég var komin í korsettið, pilsið og sokkabuxurnar skellti ég hattinum á hausinn og spurði kærastann hvort ég væri frambærileg í þessum fötum. Hann varð mjög hrifinn og lagði til að ég bætti dökkrauðum varalit við, sem og ég gerði. Ég var mjög ánægð með útkomuna. Ég hefði að minnsta kosti sofið hjá mér í þessum fötum.

Nema hvað, ég þurfti auðvitað að vera að standa í þessu þegar við vorum að ganga til náða. Eftir að hafa mátað fötin var ætlunin að fara bara beint að sofa. Kærastinn var fyrri til og var kominn úr fötunum og tilbúinn að leggjast undir sængina. Þegar ég stóð í dyragættinni á svefnherberginu okkar og hallaði mér daðurslega upp að dyrastafnum, í partýfötunum, og virti hann fyrir mér (hann er mjög myndarlegur, sérstaklega nakinn) þá kviknaði líf hjá honum. Ég sagði ekki neitt, ég gerði ekki neitt (við hann amk), en ég sá hvernig limurinn vaknaði til lífsins, harðnaði og varð til í tuskið á mjög skömmum tíma bara við þessa sjón.

Ég held að fátt gefi það jafn vel til kynna að maður líti vel út og þessi viðbrögð.

Ummæli

Vinsælar færslur