www.fetlife.com

Oft og iðullega er ég að benda fólki á fetlife. Það er ekki óalgengt að ég fái þá spurningu hvað fetlife sé.

Í stuttu máli er fetlife einn helsti samfélagsvefur þeirra sem aðhyllast BDSM í einhverri mynd. Fetlife er uppsett þannig að þú skráir þig inn, býrð til prófíl og svo genguru í grúbbur sem hver hefur sitt heiti og sérsvið. 
Helstu grúbbur íslendinga þarna inni eru BDSM in Iceland, Íslendingar á fetlife og almenn umræða. En það eru líka sérhæfðari grúbbur eins og: einkamál(looking for fet-mate in Iceland), Til sölu, Shibari in Iceland, Watersports in Iceland, Blood play Iceland og Nafnlaust kynlíf, skyndilosun. 
Annars eru til erlendar grúbbur fyrir allan fjandann. Fyrir þá sem eru forvitnir um eitthvað sem tengist BDSM, það er pottþétt til grúbba yfir það þar sem hægt að kynnast viðfangsefninu og spjalla við aðra sem hafa sama áhuga. 

Inni á fetlife er einnig að finna viðburðaskráningar, þar sem hægt er að finna þá viðburði sem eru á döfinni. Þar má nefna viðburði á borð við munch, námskeið, leikpartý, og annað í þá veru. 

Ég mæli með fetlife fyrir alla sem eru forvitnir um BDSM og vilja lesa sér til um það, fræðast og komast í samband við aðra sem eru með þetta skemmtilega áhugamál. 

Ummæli

Vinsælar færslur