Klipping

Ég þarf verulega að komast í klippinu. Lubbinn er orðinn alltof síður og óviðráðanlegur og ég efast stórlega um að þetta fari mér vel. Klipping, já takk!

Nema....

Ef ég fer í klippingu og fæ aftur stutta hárið þá verður ekki lengur hægt að toga í það.... og ég vil að það sé hægt að toga í það. Eða réttara sagt: ég vil að það sé togað í það! Það er gott! Það gefur mér eitthvað sem ég annars fæ ekki. Það er auka kikk.

Hvort ætli verði fyrri til? Einhver til að toga í hárið á mér, eða að ég gefist upp á lubbanum og fari í klippingu?

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Styttir það bara aðeins en hefur það nógu sítt til að hægt sé að toga í það :)
stelpustrakur sagði…
Til reiðu með klippur og skæri, just call me....
LL.

Vinsælar færslur