Lestur góðra bóka

Endur fyrir löngu keypti ég mér bók sem heitir Erotic Online Diaries. Eins og titillinn gefur til kynna þá eru þetta bloggfærslur á kynferðislegu nótunum. Kosturinn við þessa bók er að hún er hnausþykk og í henni koma fyrir ein 22 blogg. Þannig að maður getur opnað hana hvar sem er og byrjað að lesa. Ég hef aldrei lesið þessa bók frá upphafi til enda, en ég tek hana oft með mér í bað og les einn og einn kafla, eða nokkrar færslur.

Í morgun, í fegurðarbaðinu mínu, þá datt ég niður á blogg einnar stelpu á mínum aldri. Hún var í fullorðinsbransanum og tók meðal annars á móti símtölum frá gröðum körlum og stundaði símakynlíf með þeim. Hún átti líka kærasta og sambýling. Í einni færslunni hennar sagði hún frá því þegar hún tók á móti símtali frá kúnna, varð mjög æst við það, sem og kærastinn hennar sem fór að rúnka sér á meðan hún var á fullu í sínum með kúnnanum. Mér fannst þessi færsla meira en lítið æsandi. Eða réttara sagt, hugmyndin. Að vera að stunda símakynlíf með einhverjum og þriðji aðili fróar sér yfir því sem fram fer. Óhefðbundinn þríleikur.

Ég verð reyndar að viðurkenna á þessum nótum að allskonar símaleikir heilla mig. Símakynlíf virkar mjög vel og ég fæ alltaf löngun í að gera eitthvað óvenjulega mikið dónalegt þegar leikfélaginn er í símanum. Tilhugsunin um að vera að totta leikfélagann, á meðan hann spjallar í símann heillar mig mikið, ég myndi leggja aukalega á mig til að gera það sem allra allra best....



Ummæli

Vinsælar færslur