Óhefðbundnir þríleikir

Það rifjaðist upp fyrir mér eftir síðustu færslu að ég hef tekið þátt í svona óhefðbundnum þríleik með tilstilli síma. Á þessum tíma var ég í spjallsamandi við einstakling sem var ákaflega mikill perri í sér. Að ræða við hann á þessum nótum var rosalega skemmtilegt, fræðandi og opnaði augu mín og huga að mörgu. Hann kom með óhefðbundnar hugmyndir sumar hverjar kitluðu mig... Ein þeirra varð til þess að sagan SMS varð til.

Hugmyndin kom frá honum. Hann var talsvert graður í mig og ég afskaplega treg í taumi. Þessi hugmynd kitlaði mig samt. Hann vildi fá að hlusta á mig stunda kynlíf... Ef að ég man rétt þá spratt það út frá því að ég hafði orð á því hversu hávær ég væri. Nema hvað, úr varð að hann myndi fá að hlusta á mig stunda kynlíf með þáverandi kærasta mínum.
Við lögðum línurnar gróflega, gerðum plan um það hvernig þetta ætti að ganga fyrir sig. Ég ætlaði sko ekki að borga þetta símtal, enda fátæk framhaldsskólamær, svo við fundum kerfi sem myndi virka. Ég man ekki nákvæmlega hvernig það var, hvort ég sendi honum sms og hann myndi hringja til baka, eða hvort að við vorum með ákveðinn tíma í huga. Síminn var á silent, þannig að kærastann grunaði ekkert. Ég man ennþá hversu stressuð ég var. Ég var alveg viss um að kærastann myndi gruna eitthvað, eða að eitthvað myndi fara úrkseiðis. Allt fór samt að óskum. Þetta kvöld dró ég kærastann minn á tálar og stundaði rosalega gott kynlíf með honum á meðan svotil ókunnugur maður hlustaði. Síminn lá við hliðina á koddanum mínum allan tímann, þar sem ég geymi hann svo oft. Ég reyndar varð óvenjulega æst og hávær vitandi af áheyrandanum.
Sms-ið frá honum var svo rúsínan í pylsuendanum.

Ummæli

Vinsælar færslur