Án titils

Þessi bloggfærsla er án titils og eflaust án innihalds líka. En eins og sumar aðrar bloggfærslur þá hefst hún á staðhæfingu sem leiðir svo út í frekar skýringar. Frekari skýringar leiða út í vangaveltur eins og oft verða vill. Til dæmis að hægt sé að skrifa alveg innihaldslausa bloggfærslu sem þó hefur allt sem bloggfærsla þarf að hafa, án þess að hún innihaldi nokkurn skapaðan hlut. Það er svo dregið í einhvern ákveðinn punkt sem leiðir að niðurlagi og lokum. Eins og að núna eru komnar nokkrar línur niður á skjáinn minn, um þessa bloggfærslu sem vissulega var þörf á. En þar sem ég hafði einhvernveginn um ekkert að skrifa ákvað ég að skrifa um ekkert, eða réttara sagt, ákvað ég að skrifa algjörlega innihaldslausa bloggfærslu. Sem nú er raunin.
Þetta er vonandi fyrsta og eina bloggfærslan sem ég skrifa algerlega án titils og innihalds á þessu bloggi.

...og vonandi verður hún til þess að losa þessa ritstíflu sem hefur hrjáð mig undanfarnar vikur.

Ummæli

Vinsælar færslur