Hugkort

Um helgina hélt ég smá BDSM partý. Það var frekar fámennt en alveg gríðarlega góðmennt. Stemmingin var skemmtileg og fólkið til fyrirmyndar.
Þegar leið á kvöldið þá ákvað ég að taka einn í léttan leik. Hann dregin inn í svefnherbergi, afklæddur og bundinn ofaní rúm. Ég kom mér fyrir á milli fóta hans og fór að setja klemmur á hans allra heilagasta. Ég var í essinu mínu og tók til við að þylja upp litina á klemmunum og sagði honum að muna það. Svo þegar frá leið þá fór ég að taka klemmurnar af honum og spurði hvernig hver væri á litin, hversu margar hann væri með af þessum eða hinum litnum og fleira í þessum dúr.
Þetta væri ekki frásögufærandi ef að allt hefði gengið að mínum óskum. Hinsvegar þá er viðkomandi með einhverskonar límheila og óheyrilega oft sagði hann réttan lit eða rétta tölu! Hann virtist geta kortlagt klemmurnar á pungnum á sér, í hvaða lit hver væri og þá hve margar væru af hverjum lit fyrir sig. Það hvar hvort tveggja í senn heillandi og ákaflega pirrandi.
Ég fékk samt alveg útrás fyrir mínar sadísku kenndir með öðrum verkfærum en klemmum þetta kvöldið, eins og læri hans bera með sér.

Ummæli

Vinsælar færslur