Mig langar að blogga. Ég reyni að hafa bloggið mitt alltaf á jákvæðu nótunum og þegar lífið er hálf litlaust þá hef ég ekki frá neinu að segja. Það hefur verið almenn lægð yfir mér undanfarið og allt sem byrjar á kyn hefur ekki sama heillandi sjarma og oft áður. Það sama gildir um BDSM af öllu tagi.

Það mest krassandi sem hefur á daga mína drifið undanfarið er að núna veit ég eitt og annað um bílinn minn sem ég vissi ekki áður.
-Ég kann orðið bílnúmerið utanað, árgerð og vélarstærð og allt.
-Ég er orðin fastagestur hjá varahlutaversluninni sem sérhæfir sig í þessum gerðum bíla og er orðin kumpánaleg við afgreiðsludömurnar.
-Ég veit orðið hvernig bíllinn minn lítur út að innan og hvar hvaða hlutir eru staðsettir í honum. Ég kann orð á borð við hjálparátak, spindilkúla, millikassi og lokalokalok (lokalokalok er samt bara í lödum eftir því sem ég best veit) og ég get næstumþví bent á þá undir húddinu.
-Ég meira að segja skipti um útvarp í honum alveg sjálf.
-Ég er líka alveg handviss um að púst- og bremsuviðgerðirnar hafi gengið svona vel fyrir sig engöngu af því að ég fylgdist grannt með og hvatti þar til gerðan viðgerðarmann til dáða. Svo maður tali ekki um einstaka hæfileika mína í að koma með viðeigandi verkfæri eftir pöntunum....

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Lokalokalok er í öllum bílum. Ekki bara lödum.

Vinsælar færslur