Chilli

Á milli jóla og nýárs hefur myndast hefð fyrir því að við systkinin hittumst í súpu. Að venju var mölluð mexíkósúpa og sátum við sveitt við að skera niður grænmeti í gríð og erg um morguninn. Tómata, papriku, lauk og chilli, öllu þessu og fleiru var blandað í stóran pott og voilá! Úr varð dýryndis súpa sem allir átu með glöðu geði.
Um kvöldið lá ég andvaka í rúminu. Eftir nokkrar byltur ákvað ég að besta ráðið væri fullnæging fyrir svefninn. Ég kom mér fyrir útglennt í rúminu með báðar hendur milli fóta. Fljótlega eftir að ég byrjaði að eiga við mig var ég orðin rennandi blaut og nálgaðist fullnæginguna óðfluga. Í tók eftir smá ertingi sem ég þekkti ekki, en ég kenndi því um að hafa verið þurr þegar ég byrjaði. Fullnægingin stóð ekki á sér þetta kvöldið og ég engdist um í fullnægingarkrampa í rúminu. Eftir fylgdi þessi einstaka djúpa slökun sem ég venjulega sofna út frá.
Nema núna. Núna var ertingurinn ennþá til staðar, og ekki nóg með það þá jókst hann. Tilfinningin var líkt og brunatilfinning og það tók mig nokkur augnarblik að átta mig á því hvað var að gerast. Árans chilliið sem ég hafði verið að handleika um morguninn hafði setið á höndunum á mér allan daginn og skilað sér þangað niður með atlotum mínum!! Í smá stund þá logsveið mig undan því, en smám saman hjaðnaði það og ég gat sofnað.
En!! Eftir að hafa óviljandi prófað þetta, þá held ég að það sé æðislegt að nota það í leik!

Ummæli

Vinsælar færslur