Draumur um dom

Alltaf reglulega vaknar upp þessi löngun hjá mér. Mig langar í dom! 
Mig langar hreinlega í samband sem að byggir á því að hann sé drottnandi og ég sé undirgefin. Mig langar í einhvern sem ég á auðvelt með að tala við allt milli himins og jarðar, drauma, langanir og hugrenningar.
Mig langar í samband þar sem ég er hans gersemi og leikfang. Mig langar að tilheyra honum og njóta endalausrar athygli. Mig langar að okkar samband sé uppspretta ánægju, gleði, nautna og leikja.
Mig langar hann sé þroskaður að hugarfari, sjálfsöruggur, gáfaður og þolinmóður. Stór kostur ef að hann væri framalega í sínu fagi. Hann yrði að vera vel að orði fari í ræðu og riti og njóta samskiptanna við mig. Draumurinn er að hann sé hugmyndaríkur og leikglaður og nýtur þess að nota mig sér til ánægju og yndisauka.
Umfram allt þá langar mig í þessa tengingu. Mig langar að finna að ég tilheyri honum sama hvað bjátar á. Mig langar að langa til að gefa honum mig alla og leggja ýmislegt á mig fyrir hans velþóknun. Ég vil að hann sé stoltur af mér og ég myndi leggja mig mikið fram til að ná því. Bara að heyra að ég sé góð eða dugleg stelpa myndi umbreyta slæmum degi í góðan.
Mig langar að gefa honum valdið yfir mér og valið. Hvort það er blái kjóllinn eða sá rauði. Hvort það er brúnt naglalakk eða fjólublátt. Hvort hárið sé sítt eða stutt. Hvort ég sé rökuð, vöxuð eða loðin.
Mig langar líka að það sé áskorun að þjóna honum. Ég vil ekki að þetta sé of auðvelt fyrir mig.
Mig langar í heimaverkefni og skyldur frá hans hendi. Mig langar að hann stýri mér og stjórni. Mig langar að hann noti mig sér til ánægju og yndisauka. Mig langar að minn sársauki og óþægindi séu hans ánægjuefni, til jafns á við nautn mína og unað. Mig langar að við eigum okkar hluti saman. Mig langar með honum á tónleika, út að borða eða í leikhús. Þar sem utanfrá séð séum við venjulegt par, en ef til vill er eitthvað meira í gangi sem enginn sér. Mig langar í umgengisreglur, að mega ekki gera eitthvað, eða verða að gera eitthvað í hans návist. 
Ég vil ekki vera ljótt leyndarmál en ég þarf ekki að vera kærasta og mæta í fjölskylduboð. Ég vil að eftir harðann leik eða að kvöldi dags kúrum við saman og spjöllum þar til svefninn yfirbugar okkur.... 


Ummæli

Vinsælar færslur