Eina sanna rétta leiðin

Oft er varað við því innan BDSM þegar menn vilja meina að þeirra leið að BDSM iðkun sé "hin eina sanna rétta leið". Þessu er jafnan beint að nýliðum og það er yfirleitt í þeirri meiningu að innan BDSM má finna misyndismenn eins og annarsstaðar. Menn sem nýta sér fáfræði nýliðanna til að fá sínu fram.

Um daginn fékk ég til dæmis að heyra það að endaþarmsleikir séu nausðynlegir þegar kemur að BDSM, og ef að ég fílaði ekki að fá það í rassinn, þá væri ég ekki nógu undirgefin. [Til að fyrirbyggja allan misskilning, endaþarms-eitthvað er ekki nauðsynlegt þegar kemur að BDSM, það er vel hægt að stunda geggjað BDSM án þess að snerta stjörnuna]

Ég hef aðeins verið að hugsa þetta og verð að viðurkenna að ég held fast í "hina einu sönnu réttu leið" þegar kemur að BDSM. Það er að segja: Mína leið! Og mér er illa við að bregða útaf henni.

Hvað felst svo í minni leið?
-Það er að ræða saman opinskátt um allt og ekkert.
-Það er að hafa ánægju af samskiptunum og finna neistann. Ekki vera í kapphlaupi að fyrsta leiknum.
-Það er að ræða hvað mann langar að gera, hvernig og afhverju, benda á myndir, lesefni, umræðuþræði og annað í þeim dúr sem vekur áhuga manns til að skoða möguleikana.
-Það ræða hvernig hægt sé að gera þetta á öruggan máta og svo hvar mörkin liggja.
-Það er að ræða praktísku atriðin, staðsetningar, tímasetningar, varnir og annað þessháttar.
-Það er að hittast fyrst á hlutlausum stað, eins og kaffihúsi eða munchi.
-Það er að byggja upp persónulegt samband áður en til kastanna kemur.

Þegar um mig er að ræða þá erum við að tala um netsamskipti í 95% tilfella. Þegar kemur að því að finna mögulegan leikfélaga þá er ég með eftirfarandi atriði í huga:

[ ] Hefur viðkomandi lágmarks kunnáttu og færni í íslensku eða ensku máli?
[ ] Getur viðkomandi sett saman heilar setningar en ekki bara stykkorð?
[ ] Getur viðkomandi talað um aðra hluti en kynlíf eða BDSM?
[ ] Getur viðkomandi spjallað bara spjallsins vegna en ekki endilega með hitting í huga?
[ ] Hefur viðkomandi lágmarks kunnáttu í BDSM orðræðunni, eða einlægan áhuga á efninu?
[ ] Getur viðkomandi rætt BDSM og kynlíf á almennu nótunum en ekki í einhverju gredduhjali?
[ ] Er viðkomandi skemmtilegur og jákvæður í netsamskiptum, sparar ekki orðin og kemur persónuleika sínum til skila í gegnum ritað mál?

Ég eiginlega verð að bæta við neikvæðu atriðinum líka.

[ ] Viðkomandi notar ekki "haha" eða "hehe" á eftir hverri setningu.
[ ] Viðkomandi ofnotar ekki broskalla.

Þegar ég lít yfir listann eru þetta ansi mörg atriði sem viðkomandi þarf að uppfylla. Hinsvegar þá hefur það alveg gerst að viðkomandi hefur uppfyllt öll skilyrðin og minni aðferð var fylgt í þaula, það endar þá jafnan með einhverju unaðslegu til skemmri eða lengri tíma.

Ummæli

Vinsælar færslur