Eins og glöggir lesendur mínir hafa eflaust fattað þá hefur lítið verið um bólfarir hjá mér undanfarið. Ef satt best skal segja er ég farin að finna fyrir því. Mér finnst ég soltin... mig langar í útrás.
Þetta er eitthvað sem einföld sjálfsfróun fær ekki fullnægt. Enda er ég farin að finna fyrir því á nýjan og öðruvísi máta. Ég örvast við undarlegustu og ótrúlegustu hluti. Maður er bundinn og laminn í sjónvarpsþætti og BDSM-hliðin bærir á sér. Maður og kona horfa hvort á annað með lostafullum augum og ég finn hvernig geirvörturnar harðna. Ef að eitthvað meira á sér stað engist ég um....
Mig langar í og mig vantar útrás! Með annarri manneskju. Með manneskju sem kann og veit og skilur þörfina og getur fullnægt henni.

Ummæli

Vinsælar færslur