Á sama tíma

Í þessu greddukasti sem ég hef verið í undanfarið þá uppgvötaði ég að ég hef verið á þessum sama stað áður. Mig langar að segja á sama tíma á ári, en það er meira á sama tíma.... með 14 mánaða millibili eða svo.

Eftir að ég átti eldra barnið leið einhver tími áður en ég fór á blæðingar aftur. Eftir fyrstu blæðingarnar datt ég í þetta svakalega greddukast með þeim afleiðingum að yngra barnið varð til.
Núna er það svo að ég er búin að fara á einar blæðingar, og í kjölfarið kom líka þetta greddukast. Ef að ég passa mig ekki verður þriðja barnið komið í júní á næsta ári. Nei! Það er ekki planið. Núna verða fætur settir í kross og lokað og læst!!

Það er samt svolítill lúxus að hafa bara farið á tvær blæðingar undanfarin tvö ár. -Restin af því sem hefur gengið á undanfarin tvö ár er samt alls enginn lúxus. Það eru til hentugri og þægilegri aðferðir til að losna við blæðingar.

Ummæli

Vinsælar færslur