fetish, kink eða eitthvað allt annað

Mig langar að skrifa um kynni mín við einstakling sem ég hitti á munchi fyrir þó nokkru síðan.

Fyrir þá sem ekki vita eru munch kaffihúsa hittingur fólk sem hefur áhuga á BDSM í einhverri mynd. 

Ég sat við borð ásamt öðrum perralingum og við þetta borð sat maður. Ég þekki hann ekki persónulega, en hann var greinilega enginn nýgræðingur. Spjallið fór um heima og geyma og þessi maður tók ekki mikinn þátt í því. Þangað til samtalið fór inn á hans áhugasvið. 
Það var eins og kveikt hefði verið á rofa og hann lifnaði við. Allt í einu sást blik í augum hans og hann sýndi áhuga á því sem fram fór. Hann gat látið ljós sitt skína, þar sem það var augljóst að hann hafði sérþekkingu á þessu sviði. Fólk horfði til hans af áhuga og virðingu og tók greinilega mark á því sem hann sagði. Hann hreinlega ljómaði og það var dásamlegt að fylgjast með honum.
Þetta enntist á meðan spjallið snérist um það sem hann hafði áhuga á.
Þegar farið var að ræða aðra hluti þá virtist hann missa aftur áhugann. Ljóminn hvarf af honum og hann hætti að taka þátt í samtalinu.

Ég sá svo þennan mann í partýi ekki alls fyrir löngu. Eins og ég sagði, þá þekki ég hann ekkert og spjallaði þar af leiðandi ekkert við hann. Hann kom inn, og hafði greinilega verið búinn að ákveða leik fyrirfram. Hann setti upp sína stöð og ég er ekki frá því að það hafi fleiri en einn, og mögulega fleiri en tveir, tekið leik með honum, hver á eftir öðrum. Það var líka augljóst að þetta var hans ástríða. Hann óx einhvernveginn veginn og varð meiri. Hann var svo djúpt inni í sínum heimi í sínum leikjum að ég heillaðist alveg af því sem átti sér stað. Þó svo að þetta sé ekki innan míns áhugasviðs í BDSM.

Þetta er líka það sem heillar mig við BDSM og BDSM-fólkið, senuna og samfélagið í kringum þetta. Allir hafa sínar eigin ástríður, sitt eigið áhugasvið, sitt eigið "eitthvað", sem fær fólk til að ljóma, til að fá blik í augun og til að vaxa og taka pláss. Það þarf bara að gefa þeim rými til þess, og því miður er það ekki alltaf raunin í vanilluheiminum. Þess vegna er ég svo gríðarlega þakklát fyrir BDSM samfélagið okkar. 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Fyrir þá sem ekki þekkja til en eru forvitnir... "Setja upp sýna stöð" Hvað er á við með því?

Kveðja
ComputerSaysNo
Prinsessan sagði…
Þar á ég bara við að hann fann sér stað í rýminu fyrir sig og sína leiki.
Svona "stöð" getur verið allskonar, borð, gólf, stóll, staður með sérhönnuðum húsgögnum. Bara aðstaða þar sem maður getur komið dótinu sínu fyrir og getur leikið.

Vinsælar færslur