Eftir dásamleg og innileg atlot hungraði mig í eitthvað meira. Eitthvað annað. Eitthvað sem var einu eða tveimur stigum hærra en vanillan sem umlék okkur. Ég vildi finna að hann hafði valdið. Mig vantaði að finna að hann hafði valdið. Við lágum uppi í rúmi í faðmlögum og ég virti hann fyrir mér á meðan ég velti þessu fyrir mér.

Ég reisti mig við og kyssti hann á munninn. Það er samt varla hægt að kalla þetta koss, þetta var ofurlaus snerting minna vara við hans. Hann teygði sig á móti mér og vildi greinilega fá meira. Ég hinsvegar dró mig til baka og lét hann ekki ná mér, aðeins til að endurtaka leikinn. Varir mínar rétt snertu hans, ertandi, kitlandi, ögrandi. Hraðar en ég átti von á var hann búinn að toga mig til sín og hélt mér fastri á meðan varir hans sökktu sér í mínar, og munnur hans og tunga gerðu innrás í minn. Ég bráðnaði við þessi atlot! Það var akkúrat þetta sem mig vantaði!

Hann hafði valdið og var óhræddur við að nota það og sækja það sem hann langaði í, sem þessa stundina var ég. Þetta var fróun fyrir undirgefnu hliðina mína og jók enn meira á nautn mína.

Ummæli

Vinsælar færslur