Snerting




Ég var búin að gleyma því hvað mér finnst gott að vera snert. Ég var búin að gleyma því hvernig ég umbreytist, það slaknar á öllum vöðvum og athyglin fer þangað sem fingurgómar snerta húðina mína. Andardrátturinn verður hægur og djúpur, og ég næ að njóta bara. Þangað til það vaknar upp togstreitan á milli þess að njóta augnarbliksins, að njóta þess að finna hendur og fingur gæla við mig þar sem þeir eru, og svo eftirvæntingin eftir því sem kemur næst. Að finna húðina rafmagnast og andardráttinn verða örlítið hraðari. Ég var alveg búin að gleyma því.

Ummæli

Vinsælar færslur