Dótakaup á tímum covid

Munið þið eftir titraranum sem ég pantaði? Já, þessi sem ég pantaði fyrir margt löngu síðan og skrifaði færslu um að hann væri á leiðinni?

Hann er ekki ennþá kominn! Það er agalegt! Ég pantaði hann af ærinni ástæðu, af því að mig vantar hann. Mig vantaði hann í byrjun desember, og allan desember, og megnið af janúar líka! 
Ég ætlaði að fara að kvarta, en viti menn! Út af covid má gera ráð fyrir lengri afgreiðslutíma, og ef að hann verður ekki kominn í APRÍL þá má ég senda þeim formlega kvörtun. Ég var ekki að panta mér titrara í byrjun nóvember, til að nota hann sex mánuðum síðar. 

Það endaði með því að ég pantaði mér bara meira dót. Ætli ég megi ekki bíða eftir því fram í júlí þá?

Ummæli

Vinsælar færslur