Hvernig færðu fullnægingu?

Ég fæ það best með sjálfri mér. Þá er ég oftast bara heima, uppi í rúmi án allra aukahluta. Þegar ég vil gera vel við mig, þá nota ég sögur, hljóðbrot eða klámmyndir. Þegar ég vil fá það vel og dekra við sjálfa mig þá næ ég mér í dót. Því fleira dót, því fljótari er ég að fá það, svona alla jafna. Stundum er maður ekkert að flýta sér, svo of mikið af dóti er ekki endilega málið. 


Ég var að hlusta á konu sem er kynlífsráðgjafi áðan. Hún benti á að maður ætti að varast að nota bara eina tækni við sjálfsfróun, eða við það að framkalla fullnægingu hjá sér. Þegar maður gerir það þá er maður á sama tíma að draga úr möguleikanum að fá það á marga og mismunandi vegu. Þetta kom mér mjög mikið á óvart. Samt hljómar þetta svo eðlilega. Auðvitað verður maður að viðhalda eiginleikanum við að fá það við mismunandi aðstæður, í mismunandi stellingum, með mismunandi fólki jafnvel. Eins og fram hefur komið þá lærir líkaminn að tengja ótrúlegustu hluti saman. Orð við fullnægingar. Á sama hátt hlýtur hann að tengja vissa tækni og örvun við fullnægingar, en á sama tíma að útiloka aðra tækni og möguleika, nema maður iðki það. 

Þvílík hugljómun sem þetta var. Núna þarf ég að fara að æfa mig! Það verður sjálfsfróðað í öllum mögulegum stellingum á næstunni. Hver veit nema maður stígi út fyrir þægindarrammann og frói sér á nýjum stöðum jafnvel. Ekki bara uppi í rúmi, kannski í sófanum? Inni á baði? Jafnvel í baði? Eða í eldhúsinu? 

Ummæli

Vinsælar færslur