Violet wand

Mig vantar svoleiðis. Að mig vanti svoleiðis nær eiginlega ekki utanum þörfina mína fyrir að eignast svoleiðis. Mig sárlega vantar svoleiðis! Ég iða í skinninu og mig klæjar í fingurna eftir svona græju.

Ég vissi ekki að mig vantaði svona. Ég get hreinlega fullyrt að fyrir tveimur árum síðan langaði mig nákvæmlega ekki neitt í svona dót. Ég hafði séð fólk leika með svona apparat, en þar sem ég er hálf smeik við rafmagn og þekkti þetta lítið þá höfðaði það ekkert til mín.

Það var ekki fyrr en ég sá konu leika við mann með svona í partýi á því herrans ári 2020. Hún naut þess svo innilega að pína greyið. Ég er svo sem nokkuð viss um að hann hafi notið þess líka. Ég bókstaflega klappaði og hoppaði af sadískri gleði yfir þessari sjón.

Svo komst ég í tæri við svona tæki um daginn. Ég gjörsamlega gleymdi mér í fikti. Áður en ég vissi af var eigandi græjunnar ber að ofan með blindfold, á meðan ég prófaði að nota vöndinn á hendur, bringu, maga og síðast en ekki síst, geirvörtur hans. Það var alveg óvart... ég ætlaði bara að kíkja í smá kaffispjall.

Engu að síður varð þessi heimsókn til þess að mig vantar svona græju!!!

Ég á afmæli bráðum....

Ummæli

Vinsælar færslur