Ég er á þörfinni!!

Ekki þessari „hefðbundnu“ þörf þar sem mig vantar kynlíf, þar sem mig vantar að vera ýtt niður á rúmið, eða fram á borðið, eða upp við vegg og bara tekin! Þar sem mig vantar að engjast og emja af unaði og nautn. Þar sem mig vantar að vera út úr heiminum og ótalandi vegna örvunar. Ég myndi svosem ekki slá hendinni á móti svoleiðis þjónustu. Ég er samt ekki á þeirri þörf. 

Mig vantar..... knús eða þétt faðmlag, eða að skríða í fangið á einhverjum í sófanum og vefja handleggjunum á viðkomandi utanum mig. Mig sárlega vantar líkamlega nánd. Ekki endilega kynlíf. Allir geta verið fullklæddir mín vegna. Vá hvað mig vantar það!

Ummæli

Vinsælar færslur