Hittingur á næsta leiti

Það styttist í hitting hjá mér. Ég á einn leikfélaga sem ég hitti alltof sjaldan að mínu mati. Hinsvegar er ég alveg í skýjunum með allt okkar leikfélagasamband. Ég segi það oft og iðullega við hann að ég sé dekraðasta manneskjan í mínum landshluta þar sem hann leynt og ljóst spillir mér gjörsamlega. Ég eeeelska það!!

Ég finn að hugur minn leitar til hans í sífellu svona í aðdraganda hittingsins. Ég læt mig dreyma um snertingu hans og rifja upp litla hluti frá fyrri kynnum. Hvernig hann snerti mig þarna, hvernig hann tók mig svona, hvernig limur hann rann auðveldlega inn í mig í þessari stellingu og augnarráðið!

Ég finn hjá mér þörf til að snyrta mig og fegra fyrir komandi hitting. Ég held að þetta sé eitthvað frumstætt sem býr í okkur. Ég horfi gagnrýnni augum á mig í speglinum og tek eftir að augabrúnirnar þarf að plokka, það þarf að raka hárin á leggjunum, svo ég tala nú ekki um píkuna. Mig langar að skrúbba líkamann, bera krem á allan kroppinn, pússa neglur og lakka, og gera mig sæta. Mig langar að vera óaðfinnanleg og girnileg. Mig langar hafa útlit fyrir hann til að dáðst að, girnilegar varir til að kyssa, mjúka húð til að snerta og yndislega píku til að leika sér að. Fyrir mér er undirbúningurinn líka partur af leiknum. Á vissan hátt má því segja að leikurinn sé um það bil að hefjast.

Ummæli

Vinsælar færslur