Ég er abbó!

Ég þekki fullt af frábæru fólki. Ég er líka svo lánsöm að margt af þessu frábæra fólki deilir sinni reynslu og þönkum með mér. 

Áðan var ég að spjalla við einn kunningja minn um heim BDSM. Hann er nýr í þessu öllu og er með leikfélaga sem er líka nýr í þessu. Saman eru þau að feta sig áfram í BDSM, spjalla um fantasíur og langanir, prófa sig áfram og fikta. Hann sagði mér að fyrst og síðast væri þetta ógeðslega gaman! Ég veit! Ég veit þetta er ógeðslega gaman. 

Um daginn átti ég líka spjall við gamlan leikfélaga. Sá er kominn á fast og er lukkulegri en ég hef nokkurn tíman séð hann. Kærastan er víst alveg fullkomin fyrir hann. Þeirra kink passa ótrúlega vel saman og þau eru endalaust að brasa eitthvað saman. Það yljar mér um hjartaræturnar að sjá hann svona hamingjusaman. 

Ein vinkona mín er líka að slá sér upp. Ástin liggur í loftinu og það er greinilegt að það er fjör í svefnherberginu hennar. Það er dásamlegt að hlusta á hana segja frá afrekum næturinnar, kostum elskhugans og almennt hvernig hún er að njóta sín. 

Ég átti líka spjall við annan gamlan leikfélaga sem deildi því með mér að hann ætti orðið vinkonu. Þau væru svona fríðindavinir. Fríðindin í þessu tilfelli er auðvitað kynlíf og kink. Þau hittast yfir kaffibolla, ræða málin og leika eitthvað. Stundum í öfugri röð; leika, spjalla og drekka kaffi. Ég velti því upp hvor þátturinn hefði meira vægi hjá þeim, vinskapurinn eða fríðindin, og svarið var að þetta væri svona 50/50. Hann var mjög glaður með þetta fyrirkomulag og ég samgleðst honum innilega.

Önnur vinkona mín er að leika það mikið að það skín af henni. Maður sér það á henni hvað hún er sátt í sinni, og fullnægð. Þegar við hittumst og spjölluðum saman síðast sagði hún mér að hún væri að leika við þennan, og þennan, og hinn, og svo hafi hún hitt þennan líka. Þannig að maður verður að taka númer ef maður vill eiga stund með henni. Nei, ég hef ekki áhuga á henni kynferðislega/kinklega. Ég er algjörlega karlkynhneigð í þessum efnum. Þá er ég bara að tala um svona stelpudeit.

Ég samgleðst þessu fólki alveg innilega! Það gleður mig að heyra frá því sem er í gangi í þeirra lífi. En á sama tíma er ég að deyja úr öfundsýki!!!
Ég er ekki að segja að ég vilji skipta við neitt þeirra. Öfundsýkin mín snýr meira að því að þau eru að njóta sín og upplifa svo margt jákvætt og gott, kink og/eða kynlíf, sambönd og/eða rómantík. Það er mikið í gangi og margt spennandi. Mig langar í það!
Mig langar að hafa mikið í gangi og margt spennandi, mig langar að sleppa mér í gleðinni og njóta þessa alls. Þess í stað er ég föst í flækjum vanillulífsins, þar sem dagskráin er þétt, skyldurnar margar og ekki mikið svigrúm fyrir allskonar skemmtilegheit. 

Svona er samt bara lífið (núna, þetta breytist vonandi bráðlega).

Mest langar mig samt bara í kúr! Að liggja þétt upp við hlýjan líkama og finna hendur halda þétt utanum mig..... dreym.... Já, ég er ennþá á þörfinni. 

Ummæli

Vinsælar færslur