Ein heima

Ég er nýlega flutt. Komin með eigið þak yfir höfuðið, eða sko, ég borga afnot af því. 

Í dag kom ég heim eftir bráðskemmtilega bústaðaferð með vinkonu minni. Ég var eins og sprungin blaðra og það var svo gott að koma heim, vitandi að engar skyldur biðu mín, ekkert sem þurfti að gera og best af öllu: ekkert fólk!!! 

Eftir misheppnaða tilraun við að setja upp snaga settist ég í sófann og opnaði tölvuna. Ég opnaði allar þær síður sem ég kíki á reglulega, fetlife, einkamal, facebook.... en svo rambaði ég inn á literotica, grúskaði þar í nokkrum sögum og lenti á einni frekar djúsí. 
Venjulega passa ég mig mikið, ég sit þannig að enginn geti séð hvað ég er að gera í tölvunni, jafnvel þó ég sé ein heima, því það var alltaf ákveðin hætta á því að einhver kæmi að mér. Ef eitthvað kveikir í mér læðist ég inn í herbergi, loka að mér og leggst undir sæng. Ef stemmingin væri þannig að ég vildi eitthvað meira, eins og að horfa á klámmynd gerði ég það með heyrnatól í eyrunum og passaði að ekkert heyrðist í mér. 

Stemmingin í sögunni var orðin sjóðandi heit og kveikti mikið í mér þegar ég áttaði mig allt í einu á því að ég var alein! Alveg alein og enginn myndi koma að mér! Ég læddi annarri höndinni niður í buxurnar minar og fann að ég var þegar orðin rennandi blaut. Ég hélt lestrinum áfram með aðra höndina að fitla við þurfandi snípinn og ekki leið á löngu áður en ég fann fullnæginguna hellast yfir mig.
Mig langaði samt í meira.... Leið mín lá þá inn á xHamster, þar sem ég fann mjög áhugavert myndband. Tveir karlar og ein kona. Mér fannst ég vera svolítið djörf að kveikja á myndbandinu með hljóðinu á og allt. Stundur þeirra fylltu rýmið og á örfáum mínútum helltist önnur fullnæging yfir mig. Ég virkilega naut þess að geta gert það sem ég vildi þar sem ég vildi, á mínu eigin heimili. 

Þetta verður sko endurtekið!

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Èg vissi alltaf að draumur allra kvenna væri að hafa tvo karla á sama tíma..... Hélt reyndar alltaf að annar ætti að vera í eldhúsinu meðan hinn væri að þrífa 😇

Kveðja
ComputerSaysNo
Prinsessan sagði…
Bæði betra! Ef að þeir eru fjölhæfir gætu þeir gert bæði. Fyrst þrif og matur og svo....
Nafnlaus sagði…
Jammmþ hún hagar sér eins og prinsessa 😄 vill fá allt í einum pakka.

Ætli 3 some draumur meðal kvk sé mælanlegur í samanburði við kk.

Kveðja
ComputerSaysNo
Prinsessan sagði…
Sko, fantasíum fólks er hægt að skipta gróflega í þrennt. Það er 1. valdaleikir, 2. óhefðbundnir staðir og 3. forboðinn aðili.
Það er ekkert um trekannta í því. Ég verð að viðurkenna að ég þekki ekki til tölfræði um þá.
Það væri samt skemmtilegt, hvaða form er vinsælast, MMF, MFM, FFM, FMF. Hversu margir hafa þetta sem fantasíu og hversu margir láta verða af þessu?
Nafnlaus sagði…
Við verðum vara að skella í kónnun... Grunar að MMF fái fæstu stigin en ég er enginn snillingur í þessum efnum svo ég bíð eftir niðurstöðum frá þér.

Ætli ég segi ekki bara já við flest öllu.

Kveðja
ComputerSaysNo

Vinsælar færslur