Örfantasía

Ég sit klofvega ofaná þér í sófanum. Limur þinn fyllir mig og ég ek mér til ofaná þér. Hendur þínar halda um mjaðmirnar mínar.
Ég styn af nautn og beygi mig niður til að kyssa þig. Þú tekur vel á móti kossi mínum og hendur þínar taka um höfuðið á mér. Þú heldur mér þétt á meðan kossinn breytist frá því að vera ég að kyssa þig, yfir í að þú sért að kyssa mig. Þú gefur eftir en ekki meira en svo að hendur þínar fylgja mér eftir þegar ég reisi mig við.
Fingur þínir strjúka yfir varir mínar og leita niður á hálsinn. Þar staðnemast hendur þínar. Ég finn hvernig þú hefur líf mitt í lúkunum. Ég tek um úlnliðina þína og halla mér fram inn í grip handa þinna, á sama tíma grípa hendur þínar þéttingsfast um hálsinn á mér. Ég finn hvernig unaðurinn hellist yfir mig. Þú fyllir mig og þú hefur mig í greipum þínum. Ég er algjörlega á þínu valdi. 

Ummæli

Vinsælar færslur