Kúr

Mig langar í kúr. Mig langar að fá snertingu og mig langar að snerta. Mig langar að liggja í fanginu á þér, með höfuðið á öxlinni, kannski bringunni, eða jafnvel á upphandleggnum á þér. Mig langar að anda að mér angan þinni. Mig langar að finna þig taka utanum mig, finna handleggina vefjast utanum mig og upplifa mig smáa og örugga hjá þér. Mig langar að strjúka fingrunum yfir þig, snerta þig og skoða með fingurgómunum. Mig langar að njóta nálægðarinnar við þig, njóta líkama þíns og njóta þín á þennan hátt.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Eru ekki seldir stórir bangsar í Costco ?
👿

Kveðja
ComputerSaysNo

Vinsælar færslur