Lykt

Ég hitti mann fyrir einhverju síðan. Við áttum unaðslegan hitting fullan af allskonar skemmtilegheitum. Það sem eftir lifði af deginum fann ég lyktina hans á mér. Það sem meira er, mér fannst það gott. Mér fannst virkilega gott að finna hvernig ég lyktaði af hans lykt. Mögulega er þarna eitthvað frumstætt á ferð, Kannski er þetta eitthvað sem gerir það að verkum að ég leita aftur til hans og bið um meira. Kannski er þetta hann búinn að "merkja" sér mig, þannig að aðrir karlmenn finni hans lykt af mér.... Ég veit ekki, en það má velta þessu fyrir sér. Kannski var þetta bara góð áminning um að ég átti mjög góða stund með honum. 

Í þessu tilfelli var það sannarlega málið og ég upplifði sjálfa mig sem meira eggjandi og sem meiri kynveru svona. 

Ummæli

Vinsælar færslur