Ósadískur sadismi

Þetta er frekar óræður titill veit ég en það er skýring á því.

Um daginn hitti ég mann. Ég var búin að hitta hann einu sinni áður og hann fann strax út úr því að ég læt vel í mér heyra þegar ég fæ eitthvað gott. Ég styn og emja af nautn og heimta meira ef hann hittir á rétta staði. Hann hafði orð á því hversu gaman það væri að gæla við mig einmitt út af þessu. 

Þarna lágum við inni í rúmi, fimir fingur hans fundu sér farveg og áður en ég vissi af var hann farinn að gæla við mitt allra heilagasta.
Á sama tíma heyrðist hljóð sem ekki heyrist oft heima hjá mér. Það var fólk úti og með krakka með sér! Tvær konur voru beint fyrir framan svefnherbergisgluggann minn að spjalla um daginn og veginn. Ekki nóg með það þá var glugginn opinn!! Ég gat ekki staðið upp, dregið frá til að loka glugganum og haldið svo áfram. Ég hefði allt eins getað sett skilti úti í glugga: Erum að ríða. 
Ég vildi heldur ekki hætta því sem fram fór, það var einfaldlega of gott. Þess í stað neyddist ég til að bíta í tunguna á mér.
Elskhuginn horfði á mig og sagði: Ég er viss um að þetta sé pína og kvöl fyrir þig! Á sama tíma gaf hann allt í botn, hann sleikti, erti og örvaði alla réttu staðina. Hann lék á mig með sínum fimu fingrum þannig að ég náði varla andanum af unaði. Allan tímann varð ég að passa upp á að það heyrðist ekki í mér út. Það var erfitt! Af og til hélt ég koddanum yfir andlitinu á mér til að geta emjað örlítið af greddu á meðan hann lét mig finna fyrir því. Oftar en einu sinni þá tók hann smá pásu, einfaldlega af því að hann óttaðist að ég myndi öskra undan atlotum hans.  Það var greinilegt að hann naut þess í botn sem átti sér stað þarna. Ég gerði það líka, svo sannarlega.
Þegar okkar atlot voru að renna sitt skeið þá fór fólkið sína leið, það mætti halda að þetta hafi verið tímasett en þetta var samt hrein tilviljun. 

Þegar ég var farin að ná andanum aftur sagði hann glottandi við mig að hann hafi notið þessa atviks mikið. Hann var sjálfur ekki sadisti, en hann naut þess að láta mig engjast þarna um í nautn. Nautnin fyllti mig og mér hefði verið eðlislægara að láta það heyrast, hinsvegar þurfti ég að passa að ekkert heyrðist. Ég þurfti virkilega að erfiða við það. Hann vissi að ég myndi sennilega fíla þessar aðstæður, þar sem þetta var sannarlega pína fyrir mig. Þó svo hann sé á engan hátt sadisti þá skemmti hann sér við þetta og naut þess að pína mig svona. Sem skýrir þá titil færslunnar.
Með því að veita mér gígantískt magn af nautn var hann að koma mér í erfiða stöðu, þar sem ég engdist um af þörf fyrir að láta í mér heyra í aðstæðum þar sem það var ekki viðeigandi. Með því að veita mér þessa nautn var hann á sama tíma að pína mig á sadísku plani. Sjálfur er hann ekki sadisti og þetta var ekki gert með það að marki að pína mig, heldur að veita mér unað. Þessi unaður var mikill og kröftugur og að geta ekki notið hans til fulls gerði þetta að pínu og kvöl, sem kalla má sadisma á mjög djúpan máta.

Ummæli

Vinsælar færslur